Stuart Skelton og Bjarni Frímann

Stuart Skelton óperusöngvari sem margir muna frá uppfærslu Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands á óperunni Peter Grimes árið 2015 og Bjarni Frímann Bjarnason píanóleikari og tónlistarstjóri Íslensku óperunnar munu koma fram á Söngskemmtun laugardaginn 7. nóvember kl 16.00 í Norðurljósum.

Þessa frábæru listamenn þarf ekki að kynna, en Stuart sem er fæddur í Ástralíu hefur um árabil verið meðal leiðandi óperusöngara heims og sungið við öll stærstu óperuhúsin s.s. Metropolitan í New York og víða um heim. Hann hefur verið tilnefndur til Grammy verðlaunanna og einnig hlotið hin virtu Alþjóðlegu Óperuverðlaun árið 2014 sem Söngvari ársins.

Á efnsskránni eru ýmsar þekktar aríur og sönglög sem eru í sérstöku uppáhaldi hjá listamönnunum.

[INSERT_ELEMENTOR id=”5392″]