Lagakeppni Hannesarholts 2020

Þátttaka í lagakeppni Hannesarholts, Leynist lag í þér? við ljóð Hannesar Hafstein kom skemmtilega á óvart, en 206 lög skiluðu sér í keppnina. Það er því verðugt verkefni hjá dómnefnd að fara yfir öll lögin, og enn erfiðara að gera upp á milli þeirra.

Formaður dómnefndar er Þórður Magnússon en í dómnefnd sitja einnig þau Kristjana Stefánsdóttir og Tryggvi M. Baldvinsson. Sýn á þrjá fulltrúa í dómnefnd þau Völu Eiríks frá FM957, Ósk Gunnars frá Bylgjunni og Ómar Úlf frá X977.

Ekki veitir af að hafa stóran og fjölbreyttan dómarahóp til að fara yfir þennan mikla fjölda mjög svo fjölbreyttra laga sem eiga það sameiginlegt að vera við ljóð Hannesar Hafstein.

“Viðtökurnar voru frábærar og fram úr okkar björtustu vonum, en það leynir sér ekki hvað við Íslendingar eigum mikið af hæfileikafólki. Meðal þátttakenda eru bæði þekktir og óþekktir lagahöfundar og fjölbreytnin gríðarleg.” segir Vigdís Jóhannsdóttir stjórnarformaður Hannesarholts.

Dómnefnd hefur þegar hafið störf en aðstandendur keppninnar eru að skoða leiðir til að verðlaunað enn fleiri þátttakendur. KPMG styrkti verðlaunaféð fyrir 1. 2. og 3. sætið, en nú er leitað fleiri leiða til að útvíkka þetta enn frekar og styðja við enn fleiri þátttakendur. Hvernig það verður gert verður kynnt betur á næstunni.

Hannesarholt hefur alla tíð stutt við listamenn og tónlistarsenuna og draumurinn um að setja af stað lagakeppni við ljóð Hannesar Hafstein hefur lifað lengi. Hannes Hafstein skildi eftir sig hundruði ljóða af fjölbreyttum toga og það er mikið gleðiefni að hátt á annað hundrað tónlistarmenn á öllum aldri hafi fundið innblástur í ljóðum Hannesar til lagasmíðar. Á Covid tímum er ómetanlegt að eiga slíkan fjársjóð fortíðar sem nútíminn getur sótt í og heldur áfram að næra andann.

Bestu kveðjur úr Hannesarholti
Helga Lára Halldórsdóttir

[ Hannesarholt Menningarhús / Grundarstígur 10, 101 RVK / s. 511 1904 / Hannesarholt.is ]