Frá Richard Wagner félaginu á íslandi

Hollendingurinn fljúgandi 2002 – Úr efnisskrá

Þjóðleikhúsið í maí 2002

Richard Wagner félagið á Íslandi var stofnað 12. desember 1995. Tengdist stofnun þess bæði með beinum og óbeinum hætti sýningunni á styttri gerð Niflungahrings Wagners á Listahátíð 1994, en að þeirri sýningu stóðu sömu aðilar og nú taka höndum saman um uppsetningu Hollendingsins fljúgandi.

Undirrituð sem verið hefur formaður Wagner félagsins frá upphafi sat þá í stjórn Listahátíðar og kom ásamt Árna Tómasi Ragnarssyni á þeim tengslum við Festspielhaus í Bayreuth sem urðu til þess að stjórnandi Bayreuthhátíðarinnar, Wolfgang Wagner, tók að sér listræna yfirumsjón með verkefninu. Það vakti fyrir forsvarsmönnum Listahátíðar 1994 að brjóta blað í óperuflutningi hérlendis með því að koma Wagner óperu á svið. Þetta ár var 50. afmælisár íslenska lýðveldisins og meðal annars af þeirri ástæðu setti Wolfgang Wagner fram þá djörfu og óvæntu hugmynd að sett yrði upp sýning á Niflungahringnum innan þeirra marka sem aðstæður leyfðu. Sýnd yrðu valin brot með textainnskotum þar sem hin nánu tengsl verksins við íslenskan bókmenntaarf kæmu berlega í ljós. Uppsetningin tókst afar vel og vakti mikla athygli og hrifningu langt út fyrir landsteinana. Hérlendis hafði hún þau áhrif að þjappa saman bæði þeim mörgu einlægu Wagneraðdáendum sem fyrir voru auk þess sem þeim fjölgaði mjög. Ekki síst bættust í hópinn ýmsir fræðimenn sem lögðu lið við að rannsaka nánar með hvaða hætti íslenskar bókmenntir skiptu Wagner svo miklu máli. í stjórn félagsins frá upphafi voru tveir miklir hvatamenn að slíkum rannsóknum, annars vegar Jóhannes heitinn Jónasson lögreglumaður sem bjó yfir mjög umfangsmikilli þekkingu á Wagnerfræðum og hins vegar Jóhann J. Ólafsson stórkaupmaður sem bar það mjög fyrir brjósti að íslenskir fræðimenn gerðu þessu efni viðeigandi skil.

Félagið hefur lagt mikla áherslu á að veita þessum rannsókn- um brautargengi og fyrir tilstilli þess og með stuðningi fyrrverandi menntamálaráðherra, Björns Bjarnasonar, tók dr. Árni Björnsson að sér verkefnið. Eftir umfangsmikla skoðun á efninu komu niðurstöður Árna út á bók hjá Máli og menningu í árslok árið 2000. í bókinni sem ber heitið Wagner og Völsungar er leitt í ljós að um það bil fjórir fimmtu hlutar af aðfengnum efnishugmyndum Wagners í Niflungahringnum eigi rekjanlegar rætur í íslenskum bókmenntum og eru það einkum Eddukvæðin, Snorra-Edda og Völsungasaga sem hér um ræðir. Unnið er að því að koma þýðingu bókarinnar Wagner og Völsungar í dreifingu erlendis. ítarleg grein Árna Björnssonar um þessar rannsóknir mun auk þess birtast í efnisskrá Bayreuthhátíðarinnar á komandi sumri.
Hlutverk Richard Wagner félagsins hefur að öðru leyti verið að halda uppi öflugu kynningarstarfi á verkum Wagners með myndbandssýningum, fyrirlestrum og tónleikum. Síðast en ekki síst hefur stjórn félagsins stuðlað að óperuferðum til Bayreuth og haft einstaka aðstöðu til að útvega félagsmönnum sínum miða á hátíðina sem annars þarf að sækja um og bíða eftir í að minnsta kosti sjö ár eða meira. Eru þessi forréttindi okkar til komin vegna þeirrar einstöku velvildar og hlýhugar sem Wolfgang Wagner og kona hans, Gudrun, hafa sýnt forsvarsmönnum félagsins og íslendingum allt frá því þau lögðu sýningu Niflungahringsins lið 1994.
Félagsmenn eru um 160 talsins og samkomur á vegum félagsins að jafnaði vel sóttar.

Selma Guðmundsdóttir,
formaður Richard Wagner félagsins á íslandi.