Í beinu streymi á facebook síðu Hannesarholts kl. 16.00
https://www.facebook.com/Hannesarholt
Dúó Edda er nýstofnaður dýnamískur hópur sem samanstendur af tveimur ungum og efnilegum hljóðfæraleikurum sem eru báðar starfandi á Íslandi. Vera Panitch á fiðlu og Steiney Sigurðardóttir á selló. Fyrstu tónleikar Dúó Eddu voru í Eldborgarsal Hörpu vorið 2020. Þær hafa nú þegar mikið af spennandi verkefnum og tónleikum hérlendis og erlendis á döfinni fyrir næsta vetur. Dúóið heldur streymistónleika í Hljóðbergi Hannesarholts mánudaginn 19.október kl.16.
Vera Panitch, fædd 1993 í Kaupmannahöfn, hóf fiðlunám hjá Arkadi Zelianodjevo. Árið 2005 fluttist hún til Seattle og hélt þar áfram námi með fiðluleikaranum Yuriy Mikhlin. 15 ára gömul hóf hún nám við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium hjá fiðluleikaranum Alexandre Zapolski og lauk þar meistaranámi og sólistarnámi með hæstu einkunn. Við nám í Kaupmannahöfn lærði hún einnig kammermúsik undir Tim Frederiksen. Vera hefur unnið til verðlauna í mörgum keppnum í Danmörku og í útlöndum. Árið 2016 vann Vera stöðu uppfærslumanns annarrar fiðlu í Sinfóníuhljómsveit Íslands og hefur síðan þá einnig unnið stöðu annars Konsertmeistara hjá hljómsveitinni.
Steiney Sigurðardóttir er fædd árið 1996. Hún hóf sellónám 5 ára gömul hjá Örnólfi Kristjánssyni og var nemandi hans í átta ár við Suzuki tónlistarskólann í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins. Hún lauk framhaldsprófi vorið 2012 undir handleiðslu Gunnars Kvaran, aðeins 16 ára gömul. Við nám sitt í Tónlistarskóla Sigursveins fékk Steiney sérstök verðlaun fyrir hæstu einkunn á miðstigi og 6.stigi. Frá áramótum 2013 til ársins 2015 var hún nemandi Sigurgeirs Agnarssonar við Listaháskóla Íslands og við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún útskrifaðist með burtfararpróf. Steiney hlaut styrk Halldórs Hansen fyrir framúrskarandi námsárangur og fyrir burtfararpróf sitt. Hún hóf nám 2016 í Tónlistarháskólanum í Trossingen þar sem hún lærði í fjögur ár undir handleiðslu Prof. Francis Gouton. Steiney gegnir stöðu staðgengils leiðara í sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þess má geta að Steiney hélt farfuglatónleika í Hannesarholti á námsárum sínum.
Efnisskrain samanstendur af verkum sem öll eru skrifuð á fimm ára bili og á svipuðum landfræðilegum slóðum. Schulhoff var frá Tékklandi og Kodaly frá Ungverjalandi.
Dúó fyrir fiðlu og selló H.157 (1927) -Andante Moderato-Allegro con brio
Erwin Schulhoff (1894 – 1942)
Dúó fyrir fiðlu og selló (1925)-Moderato-Allegro giocoso-Andantino-Moderato – Presto Fanatico
Zoltán Kodály (1882 – 1967)
http://www.hannesarholt.is/vidburdir/vidburdir/duo-edda-kolaly-og-schulhoff
Bestu kveðjur úr Hannesarholti
Helga Lára Halldórsdóttir
[ Hannesarholt Menningarhús / Grundarstígur 10, 101 RVK / s. 511 1904 / Hannesarholt.is ]