Tannhäuser.
Vetrarstarfið hefst á sýningu á uppsetningu á Tannhäuser frá Bayreuth árið 2019. Uppfærslan er margrómuð og hefur notið mikilla vinsælda. Hún er enn í sýningu í Bayreuth, í síðasta sinn 2024. Leikstjóri er Tobias Kratzer og hljómsveitinni stjórnar Valery Gergiev. Í hlutverkum m.a. Lise Davidsen, Stephen Gould, Stephen Milling og Markus Eiche.