Sex alhæfingar um óperuformið

Atli Ingólfsson, tónskáld

Erindi á vegum félagsins 10. október 2026,
byggt á grein höfundar í Skírni 2016

Samantekt úr erindinu

Í grein sinni Sex alhæfingar um óperuformið fjallar tónskáldið Atli Ingólfsson um eðli óperunnar, þróun hennar og möguleika sem lifandi listforms. Hann rifjar upp námsár sín á Ítalíu þegar óperan var af mörgum talin úrelt. Hefðbundið form hennar hafði staðnað og nútímatónskáld fjarlægst dramatíska frásögn. Atli telur hins vegar að framtíð óperunnar felist í því að losa hana undan hefðbundnum skilgreiningum og líta á hana sem samspil allra þátta sviðslistar.

Fyrsta alhæfingin: Allt tal er söngur.
Tal og söngur séu ekki aðskilin fyrirbæri heldur mismunandi birtingarmyndir raddbeitingar. Sérhver framsögn á sviði hafi tónhæð, hrynjandi og áherslur. Því sé skipulagður flutningur texta í raun tónlistarsköpun.

Önnur alhæfingin: Allt leikhús er ópera.
Sviðsverk samanstandi af mörgum sjálfstæðum þáttum, svo sem texta, leik, lýsingu, hljóði, búningum og hreyfingu. Þessir þættir myndi svokallaðar sýningarraddir sem fléttist saman líkt og raddir í tónverki. Samspil þeirra ráði framvindu sýningarinnar og upplifun áhorfenda.

Þriðja alhæfingin: Allar raddir sýningarinnar geta sungið.
Ekki aðeins mannleg rödd heldur einnig ljós, hreyfing og leikmynd geti fylgt tónlistarlegri hrynjandi. Með markvissu samspili þessara þátta verði sviðsverkið að heildstæðri tónlistarlegri sköpun.

Fjórða alhæfingin: Söngur raddanna er laglína.
Laglína þurfi ekki að vera sungin eða leikin á hljóðfæri. Hún geti einnig s til með skipulögðu samspili sjónrænna og hljóðrænna þátta. Slík lagræna geti skapað sterk tilfinningaleg áhrif án hefðbundinnar tónlistar.

Fimmta alhæfingin: Persónan er form.
Persóna á sviði sé ekki endilega bundin við einn leikara heldur geti hún birst í tónlist, hreyfingu, lýsingu og öðrum þáttum sýningarinnar. Persónusköpun verði þannig sameiginlegt verkefni allra sýningarraddanna fremur en hefðbundin eftirlíking mannlegrar hegðunar.

Sjötta alhæfingin: Frásögnin kemur að utan.
Sviðsverk segi ekki sögu með beinum hætti heldur leggi fram myndir og atburði sem áhorfandinn tengi saman í eigin vitund. Þannig verði áhorfandinn virkur þátttakandi í sköpun frásagnarinnar.

Niðurstaða Atla er að óperan sé mun víðtækara listform en hefðin gefur til kynna. Hún þurfi hvorki hefðbundinn söng, persónur né samfelldan söguþráð. Kjarni hennar sé listrænt samspil allra þátta sviðsins. Með þessari sýn öðlist óperan nýtt líf og ótakmarkaða möguleika til þróunar. Greininni lýkur á orðunum: „Óperan er dauð. Lengi lifi óperan!“