- Þessi viðburður er liðinn
Hvernig Wagner varð Wagner

Árni Heimir Ingólfsson, tónlilstarfræðingur.
Næsta samkoma á vegum félagsins verður 9. maí kl 14 í Safnaðarheimili Neskirkju.
Richard Wagner var sem kunnugt er ekki eitt af mestu undrabörnum tónlistarsögunnar. Síðar á ævinni gerði hann lítið úr æskuverkum sínum en þó eru þau um margt heillandi vitnisburður um þroskabraut hans í tónlistinni.
Í fyrirlestri Árna Heimis Ingólfssonar tónlistarfræðings mun hann fjalla um tónsmíðastarf Wagners á árunum 1831-1838, þegar hann var 18-25 ára.
Frá þessum árum eru meðal annars metnaðarfull píanóverk, sinfónía og hljómsveitarforleikir, en einnig tvær stórar óperur, Die Feen (Álfadísirnar) og Das Liebesverbot (Ástarbannið), auk þess sem hann lagði drög að þeirri þriðju, Rienzi.
Skoðað verður hvernig Wagner þroskaðist sem tónskáld á þessum árum, hvaða tónskáld voru helstu áhrifavaldar á stíl hans og nálgun í tónlistinni, og hvernig greina má fræ hugmynda sem skjóta síðar upp kollinum í verkum sem hann samdi sem fullþroska tónskáld.
Fyrirlesturinn verður um klukkutími að lengd.
Sjá nánar hér