Loading Viðburðir

« Viðburðir - allir

  • Þessi viðburður er liðinn

Sex alhæfingar um óperuformið

10. október kl. 15:00 - 17:00

Fyrirlestur Atla Ingólfssonar í Dynjanda, Tónlistardeild LHÍ, Skipholti 31 Reykjavík, laugardaginn 10. október 2026 kl. 15:00

Erindið heitir Sex alhæfingar um óperuformið og byggir nokkuð á samnefndri grein Atla sem birtist í Skírni árið 2017 en með seinni tíma viðbótum.
Viðfangsefnið má segja að séu hugleiðingar og alhæfingar sprottnar af vinnu höfundarins við tónleikhúsverk og í raun um það hvernig hann fór loks að „skilja“ óperuformið, þótt einhverjum gæti þótt skilningur hans nýstárlegur.
Í stuttu máli má segja að hann trúi því að óperan sé einfaldlega samheiti fyrir gott leikhús.

Fyrirlesturinn er um klukkutími að lengd.

Nánar

  • Dagsetning: 10. október
  • Tímasetning:
    15:00 - 17:00

Staðsetning