Latest Past Viðburðir

Hvernig Wagner varð Wagner

Safnaðarheimili Neskirkju

Árni Heimir Ingólfsson, tónlilstarfræðingur.   Næsta samkoma á vegum félagsins verður 9. maí kl 14 í Safnaðarheimili Neskirkju. Richard Wagner var sem kunnugt er ekki eitt af mestu undrabörnum tónlistarsögunnar. Síðar á ævinni gerði hann lítið úr æskuverkum sínum en þó eru þau um margt heillandi vitnisburður um þroskabraut hans í tónlistinni. Í fyrirlestri Árna Heimis […]

Wagner og Bruckner

Safnaðarheimili Neskirkju

Næsta samkoma á vegum félagsins verður 11. apríl kl 14 í Safnaðarheimili Neskirkju. Þar mun Magnús Lyngdal tala um Wagner og Bruckner og flytja tóndæmi. Vonandi einnig sýna og selja bækurnar sínar um klassíska tónlist og óperu. Eftir að gert hefur verið kaffihlé á samkomunni munum við sýna myndina Wagner’s Jews eftir Hilan Warshaw. Sjá nánar hér